Lestrarþjálfun hefur tekið stökk...

Flýttu fyrir árangri í lestri og minnkaðu lýkur á námserfiðleikum* síðar!

*65-75% nemenda sem gengur lestrarnámið treglega lenda í námsörðugleikum síðar skv. rannsóknum

Kennarinn var stórhrifinn!

Sonur minn er 8 ára og ég vildi prófa Lesum hraðar því hann var hægur í lestri. Nýlega vorum við í foreldraviðtali og sonur okkar hefur bætt sig um 51 atkvæði frá síðustu mælingu! Kennarinn var alveg strórhrifinn :-)

Sigurbjörg Ágústsdóttir

SÉRTILBOРFYRIR LÉTTLESTRARKLÚBBINN!

Engin binding.  Áskrift endurnýjast á 30 daga fresti þar til sagt er upp.  100% endurgreiðsluábyrgð í 30 daga frá skráningu.

Lesum hraðar byggir á markvissum æfingum sem styðja við heimalestur

  • Stafaruglingur er algengur og tefur fyrir framförum.  Lesum hraðar námskeiðið inniheldur stafaæfingar sem auka öryggi og viðbragð.
  • Hægur, hikandi lestur er eðlilegur framan af en verður íþyngjand og þreytandi ef hann verður viðvarandi.  Lesum hraðar byggir á viðbragðsþjálfun sem bætir úthald og snerpu nemandans.
  • Leshraði er aukinn með sérstökum æfingum þar sem nemandinn les texta á stighækkandi hraða.

Reynir heimalesturinn á þolrifin?

Lestrarnámið gengur hægt hjá stórum hópi nemenda.  Mörg börn ruglast á bókstöfum og lesa algeng orð vitlaust og giska jafnvel.  Þessi einbeiting kostar orku og því hefur þessi hópur nemenda lítið úthald.

Lesum hraðar byggir á afar stuttum æfingatíma og því er mótþrói oftast úr sögunni.  Einfaldar, markvissar æfingar frá degi til dags tryggja framfarir í lestri.

Ævar Þór Leikari og rithöfundur

Daglegar æfingar eru lykillinn að árangri í lestri. Ef lestrarnámið fer ekki vel af stað eykst hættan á erfiðleikum síðar.

Því er mikilvægt að barnið fái tækifæri til að bæta sig með æfingum sem skila árangri án þess að vera yfirþyrmandi.

Ævar Þór Benediktsson, rithöfundur og leikari

Þekkir þú hættumerkin þrjú?

  • Ruglast barnið á bókstöfum?
    Nemendur sem eru líklegri til að lenda í lestrarvanda eiga það sameiginlegt að ruglast mikið á bókstöfum við upphaf lestrarnáms, og halda því svo áfram.  Að þekkja stafina af öryggi er mikilvægt fyrir framhaldið.
  • Les það algeng orð vitlaust, giskar eða hljóðar?
    Læs nemandi þekkir orð við það eitt að sjá það, ómeðvitað.  Hljóðun (að lesa frá einum staf til annars) er merki um að nemandinn þekki ekki útlit orðsins.  Þetta er eðlilegt - framan af.  Með tímanum verður þetta íþyngjandi og oft merki um undirliggjandi lestrarvanda, t.d. lesblindu.
  • Þreytist barnið fljótt við lestur?
    Barn sem þarf að einbeita sér mikið við að hljóða og greina útlit orða þreytist fljótt.  Það líður því ekki á löngu þar til mótþrói fer að gera vart sig.

Móðir

Æfingarnar gengu mjög vel og dóttir mín tók mikinn kipp í einkunnum og er orðinn lestrarhestur í venjulegum bókum!

Adda

Móðir

Drengurinn minn var með leshraða rétt um 30 orð á mínútu, eftir þjálfunina vorum við að mæla hann með allavega 50 orð á mínútu.

Einnig er lesskilningur orðinn meiri og hann kom út yfir meðaltali bekkjarins í fyrsta læsisprófi vetrarins!

Sandra Sif Jónsdóttir

Æfingarnar eru frábærar

Ég skráði barnið mitt vegna þess að lesturinn gekk illa að lesa og það var líka stafaruglingur í gangi.

Lesum hraðar æfingarnar eru frábærar og barninu finnst gaman að gera þær, og það er heilmikill árangur!

Guðlaug Ósk Sigurðardóttir

Ný nálgun á LESTRARÞJÁLFUN

Lesum hraðar þjálfunarnámskeiðið byggir á rúmlega 14 ára reynslu við þjálfun og kennslu.  Námskeiðið styður við heimalestur og er einfalt og áhrifaríkt inngrip sem getur komið í veg fyrir mikla erfiðleika síðar.

LESUM HRAÐAR ER EINFALT Í NOTKUN, KREFST EKKI BÓKA OG TEKUR MINNA EN 5 MÍNÚTUR Á DAG!

  • Hvert æfingaborð tekur innan við eina mínútu.  Barnið þitt getur því gert 5-10 umferðir daglega sem auka snerpu og nefnuhraða án þess að þreytast.
  • Sérvalin hugtök með háa birtingartíðni í texta.  Með því að endurtaka sama borðið styrkist sjónminnið og barnið þarf síður að hugsa eða brjóta heilann um hugtakið.  Þetta léttir á huganum og eykur lestrarhraðann.
  • Markviss endurgjöf í stað margra mánaða óvissu.  Endalausar lesæfingar virðast oft skila litlum árangri og draga úr áhugahvöt barnsins að leggja sig fram.  Lesum hraðar mælir viðbragðstíma barnsins og veitir myndræna endurgjöf í lok hverrar umferðar.

SKRÁNING


Umsagnir foreldra

profile-pic
Brynja Pétursdóttir

Barnið mitt er tvítyngt og á erfitt með lestur og talar ekki rétt.

Æfingar hafa gengið mjög vel og ekki skemmir að þetta er í símanum svo þetta er alltaf við höndina. Eldra barnið og það yngra sem er fimm ára eru líka að prófa og oft eru þau að gera þetta saman í bílnum eða jafnvel úti í bæ.

Við sjáum framfarir sjást strax þetta er snilldar námskeið!

profile-pic
Lára Bryndís Pálmarsdóttir

Sonur minn er bara 6 ára en hann a erfitt með að muna stafina og eg er bara svakalega ánægð með þetta!

profile-pic
Gréta Gunnarsdóttir

Dóttir mín er í 4. bekk og ruglast enn á stöfum og hefur takmarkaðan lesskilning.

Gagnvirkt námsefni hljómaði spennandi því það er alltaf stemming fyrir því að vera í símanum :-)

Æfingarnar hafa gengið mjög vel og stafirnir eru strax farnir að skýrast hjá henni, þ.e. hún þekkir þá frekar en áður.

Ég sé árangur strax af þessu. Við byrjum með Lesum hraðar æfingunum og færum okkur svo í lestrarbókina úr skólanum og lesturinn flæðir betur.

12 ára reynsla og sérhæfing í lestrar- og námsörðugleikum skilar sér beint til ykkar!

Ég heiti Kolbeinn og hef starfrækt Betra nám frá árinu 2004 og þeim tíma unnið með miklum fjölda nemenda sem hafa átt við lestrarörðugleika að stríða.  Ég hef unnið með fjölda fræðslumiðstöðva, Mími símenntun, Hringsjá og verið ráðgefandi í fjölmiðlum í tengslum við lestrarörðugleika.  Ég er menntaður tölvunarfræðingur, með Diplómaréttindi frá alþjóðlegu Davis samtökunum í lesblinduráðgjöf ásamt því sem ég hef lært dáleiðslu.

Meiri hraði og léttari lestur á 5 mínútum á dag!

Þannig virkar Lesum hraðar

Æfingarnar taka einungis örfáar mínútur og því er auðvelt að gera þær alla daga og tryggja ákveðnar framfarir frá degi til dags.

  1. Bókstafir: Nemandinn fer fyrst í gegnum sérstaka bókstafaþjálfun þar sem stafaruglingur getur verið undirliggjandi vandamál þegar lesturinn gengur illa.
  2. Kveikjuorð eru algeng smáorð sem hafa háa birtingartíðni í texta.  Það er afar mikilvægt fyrir barnið að læra að þekkja þessi orð þar sem þau eru oft lesin vitlaust.
  3. Algeng orð gerir barninu kleift að þjálfa sig í lestri algengra orða og einnig þeirra sem eru formlík og valda því oft erfiðleikum í texta.
  4. Sögur byggja á texta frá Sigríðu Ólafsdóttur sérkennara.  Barnið þitt þjálfast í því að lesa samfelldan texta á stighækkandi hraða.

Nemandinn lærir algeng en myndlaus hugtök sem oft eru lesin vitlaust í texta.

Augnhreyfingar, flæði og lesskilningur er þjálfað með því að lesa texta á stighækkandi hraða.

Markviss endurgjöf eftir hverja umferð sýnir framfarirnar og hvetur nemandann áfram.


Lesblinda?

Lesum hraðar er sérhannað frá grunni.  Við vitum að lesblindir nemendur eru næmir fyrir leturgerðum og mörgum finnst erfitt að lesa á hvítum grunni.  Með því að hafa hreint letur, stóra stafi og kremgulan bakgrunn auðveldum við barninu þínu að ná sem mestu árangri í lestri.

Umsagnir foreldra

profile-pic
Kristín Sigurjónsdóttir

Ég ákvað að skrá dóttur mína á námskeiðið af því að henni hefur ekki gengið nógu vel að ná tökum á lestrinum. Hún ruglar stöfum saman og litlu orðin eru erfið.

Það gengur vel hjá okkur og Evu finnst þetta frekar gaman.

Við sjáum klárlega mun, það er meiri hraði og meiri ákveðni - hún er kappsöm og stolt af sjálfri sér :)

Við erum mjög ánægð með þetta!

profile-pic
Jóhannes Bergþór Jónsson

Mér fannst sonur minn fastur í að stafa orðin. Það vantaði líka meiri hraða svo mér fannst sniðugt að prófa hvort hægt væri að gera þetta í tölvunni.

Það gengur alltaf betur og betur. Ég sá strax rosalegan mun eftir fyrsta borð og tímatakan er spennandi og hvetjandi

Við sjáum mjög mikinn mun og námskeiðið er bara algjör snilld ;)

profile-pic
Ólöf Lára Ágústsdóttir

Ég ákvað að skrá barn mitt á námskeiðið því hann hefur átt erfitt uppdráttar í lestri. Hann les hægt, þreytist auðveldlega og ruglar saman stöfum. Hann var farinn að dragast afturúr og ég vil gera allt svo hann haldi í sína jafnaldra.

Lesum hraðar æfingarnar hafa gengið vel og sonur minn er alltaf spenntur að fara í símann og lesa. Honum finnst þetta mjög gaman.

Ég sé mikinn mun og það sem skiptir mestu máli er að hann sér sjáanlegan mun við hverja umferð.

Það skiptir miklu máli að börnin sjái sjálf að þau eru að bæta sig með hverri umferð.

Ég sá líka fljótt hvar vandinn liggur og hefur það auðveldað okkur lesturinn. Nú höfum við ekki verið lengi á námskeiðinu en ég sé strax mun á heimalestrinum.

Það er kominn aukinn hraði hjá honum ásamt auknu sjálfstrausti, sem skiptir gríðarlegu máli. Við erum mjög sátt :)

profile-pic
Tómas Ingi Tómasson

Sæll Kolbeinn.

Við erum mjög ánægð með lestrarnámskeiðið og það gengur vel.

Það sem mér finnst frábært við þetta er að það hjálpaði mér að átta mig á þeim stöfum sem Andreas átti í vandræðum með (ð,é og v).

Ég fór yfir þetta með kennurum og sérkennurum í Norðlingaskóla og voru þau mjög hrifin.

Lesturinn heldur áfram!

20% AFSLÁTTUR!

SÉRSTAKUR KAUPAUKI FYLGIR: ALLT AÐ 60 MÍNÚTNA SÍMARÁÐJÖF KR. 9.900.- 0.-

Símaráðgjöfin sparar þér tíma og pening með því að veita svör við spurningum við öllu því sem þú kannt að hafa um lestrarnám barnsins þíns og tryggir þannig hámarksárangur í leiðinni.

Áskriftin endurnýjast sjálfkrafa þar til sagt upp.  Engin binding. 30 daga endurgreiðsluábyrgð.

Einfalt, fljótlegt og virkar

Daglegar æfingar eru lykillinn að árangri

John Doe UI/UX Designer

“Lykillinn að ánægjulegri lestrarupplifun síðar.”

"Daglegar æfingar eru lykillinn að árangri í lestri.  Ef lestrarnámið fer ekki vel af stað eykst hættan á erfiðleikum síðar.  Því er mikilvægt að barnið fái tækifæri til að æfa sig með æfingum sem skila árangri án þess að vera yfirþyrmandi.”

Ævar Þór Benediktsson (Ævar Vísindamaður)
- Rithöfundur og leikari

Barnið mitt ruglaðist á stöfum og var þreytt og óánægt við lesturinn. Ég ákvað því að prófa Lesum Hraðar námskeiðið og barnið var miklu ánægðara.

Æfingarnar ganga mjög vel, barninu finnst gaman að vinna verkefnin og við tölum um það sem vel var unnið.

Æfingarnar henta mjög vel, það er dagamunur á barninu, og því gengur betur með lesturinn.

Auður Hanna Ragnarsdóttir

Les mun hraðar!

Barnið mitt var ekki að ná lestraviðmiðinu nógu vel og var hikandi við lestur.

Ég sá fljótt mun, barnið les mun hraðar núna og er ekki jafn hikandi.

Guðleif Hafdís Indriðadóttir

Þetta færðu með skráningu

  • Aðgangur að sérhönnuðum æfingum sem leiða þitt barn áfram skref fyrir skref
  • Aðgangur að aukaefni á heimasíðu námskeiðsins
  • Æfinga-app fyrir heimaæfingarnar (Android og Apple)
  • 30 daga endurgreiðsluábyrgð
  • Stuðningur og aðgangur að fagþekkingu í gegnum tölvupóst og Facebook

100% endurgreiðsla í 30 daga

Örugg greiðslumiðlun

100% ábyrgð í 30 daga!

Engin áhætta.  Þú getur þjálfað barnið þitt í 30 daga og ef árangurinn lætur á sér standa hefur þú samband áður en tíminn er liðinn og við endurgreiðum þér námskeiðsgjaldið.  Sjá nánar um skilmála hér.


P.S.:: Lesum hraðar er einfalt í notkun, krefst ekki bóka og tekur minna en 5 mínútur á dag.  

Það er engin binding, þú hættir þegar þér hentar.