LESTRARÖRÐUGLEIKAR?

Áttu barn sem strögglar í lestri?

Stafaruglingur, lítið úthald, mótþrói eða hægur lestur?

Ég öðlaðist betri skilning á vanda barnsins og lærði leiðir til hjálpar sem ég gat ekki fundið að væru til staðar í skólanum.  Öllum fyrirspurnum var líka svarað fljótt og vel.

Guðrún Helgadóttir Móðir

Lesum hraðar - Lesfimi

Lestrarnámskeið fyrir foreldra barna sem glíma við lestrarörðugleika

Barnið þitt þarf ekki að vera lesblint til að ná árangri með Lesum hraðar-Lesfimi.  Námskeiðið er hannað af lesblinduráðgjafa, æfingarnar taka stuttan tíma og henta því vel samhliða hefðbundnum heimalestri eða nemendum með lítið úthald.

Námskeiðið byggir á þeirri hugmyndafræði að mestur árangur náist með því að bæta verklegum, sjónrænum æfingum við lestrarþjálfunina.  Flest börn sem glíma við lestrarörðugleika eru listræn og með frjótt ímyndunarafl.  Þau hafa mikla sköpunargáfu og njóta sín í verklegum greinum.   

Sonur minn hefur aldrei tekið eins miklum framförum milli lestrarprófa!"

Foreldri nemanda

Þannig virkar námskeiðið

Verklegar, skapandi nálgun í bland við snerpuæfingar

Markvissar leiræfingar hjálpa okkur að finna undirliggjandi bresti í lestrinum og að takast á við þá.  Nemandinn nýtur sín betur og slakar á, um leið og hann dýpkar skilning og eyðir óvissu sem mun endurspeglast í léttari lestri.

Lesum hraðar viðbragðsþjálfunin þjálfar sjálfvirkt viðbragð og flýtir framförum í lestri með einföldum æfingum sem taka bara 5 mínútur á dag - án bóka.

Um Lesum hraðar snerpuþjálfunina

Æfingar hafa gengið vel, hann er áhugasamur og vinnur hratt og örugglega. Mér finnst uppsetningin sniðug og hann ætti að ná að virkja minnið og þar af leiðandi leshraðann.

Á dögunum tók hann þátt í Stóru upplestrarkepninni, sem hefði í raun verið óhugsandi miðað við hvernig málin voru stödd á sínum tíma.   Hann sigraði keppnina bæði í sínum skóla og svo í Skagafirði.  Mér finnst að þetta gefi mynd að því hvað er hægt að áorka ef maður hefur góða aðstoð!"

Garðar Jónsson Foreldri



Ég vil byrja á því að þakka fyrir góð námskeið, Lesum hraðar og Reiknum hraðar sem sonur minn hefur verið að nota.  Ég þakka kærlega fyrir okkur bæði og mæli hiklaust með þessum námskeiðum, þau gerðu kraftaverk!"

Guðrún Lára Foreldri

Námskeiðið byggir á 3 stoðum

TVÍVÍDD

Snerpuæfingar þjálfa sjónminni og viðbragð.

Lesum hraðar

ÞRÍVÍDD

Markviss leirun örvar ímyndunarafl og lagar bresti.

Leirun

LESTUR

Sérstakar lesæfingar byggja upp lestrarfærnina.

Lesæfingar

Þess vegna virkar Lesfimi


LESARAR KENNSLUEFNIS

Kolbeinn Sigurjónsson hefur starfrækt Betra nám frá árinu 2008 og sérhæft sig í úrræðum tengdum lestrar- og stærðfræðiörðugleikum.

Hinn landsþekkti Guðni Kolbeinsson er afkastamikill þýðandi, þulur og kennari.  Guðni hefur lesið hljóðbók um lestrarörðugleika fyrir Betra nám og njótum við góðs af því hér.

Tvö 30 mínútna myndsímtöl

Með skráningu á LESFIMI fylgja tvö 30 mínútna myndsímtöl með mér.  Það fyrra við upphaf námskeiðs til að tryggja að þú fáir svör við öllum þínum spurningum áður en þú byrjar, og það seinna þegar þið eruð komin vel af stað (eftir uþb. 1-2 mánuði).  Þetta er stuðningur sem munar um.


Ég hef upplifað að þessi aðferðafræði skilar árangri, bæði þegar ég hlusta á hann lesa og einnig mikil aukning í leshraða skv. prófi í skólanum.

Móðir Nemanda

SKRÁNINGARTILBOÐ

LESUM HRAÐAR

Hentar mildari einkennum

kr.

9.900

/mán

  • Viðbragðsþjálfun
  • Fyrir snjallsíma og spjaldtölvur
  • Örvar nefnuhraða
  • Aðeins 5 mínútur á dag
  • 100% endurgreiðsluábyrgð í 30 daga
  • Engin binding

25% afsláttur
 9.900,- 7.425.-/mán

Við skráningu færðu strax fullan aðgang.  Áskriftin endurnýjast sjálfkrafa á 30 daga fresti þar til sagt er upp.  Engin binding og 30 daga endurgreiðsluábyrgð!



Við erum mjög ánægð með námskeiðið og sonur okkar sem er í 2. bekk hefur náð mjög góðum árangri.  Kristinn tók lestrarpróf í gær og það er mikil framför.  Hann var með 74 atkvæði í janúar og núna í febrúar er hann með 115 atkvæði!  Takk fyrir frábært námskeið!

María Móðir

Um höfundinn

Lesum hraðar er hannað og þróað af Kolbeini Sigurjónssyni sem hefur starfrækt Betra nám frá árinu 2004.  Kolbeinn lærði lesblinduráðgjöf hjá Davis Dyslexia Association og hefur sinnt þjálfun, kennslu og ráðgjöf um árabil, bæði til einstaklinga og fræðslumiðstöðva og fjölmiðla.

ÓKEYPIS!

Fáðu ókeypis rafbókina Úr vörn í sókn - handbók fyrir ráðþrota foreldra.


Lesum hraðar er einfalt í notkun, krefst ekki bóka og æfingarnar taka bara 5-10 mínútur á dag!

STAFAÞJÁLFUN
Lesum hraðar þjálfunin tekur markvisst á stafaruglingi.  Hér sést hvaða stafir trufla lesturinn og viðbragðið er mælt og þannig er gefið til kynna hvaða stafi þarf að þjálfa betur.

NEFNUHRAÐI
Námskeiðið byggir á snerpuæfingum og þannig er nefnuhraði aukinn markvisst.  Sérstakur orðabanki fylgir æfingunum og orð með háa birtingartíðni í texta eru æfð sérstaklega til að auka sjónrænan orðaforða barnsins.  Viðbragð barnsins er mælt og þannig sést hvaða orð þarf að þjálfa betur, auk þess sem barnið fær endurgjöf strax sem hvetur það til dáða.

LESFIMI
Nemandinn getur valilð brot úr vinsælum barnabókum til að þjálfa lestur samfellds texta.  Hér þjálfast barnið í því að nota jaðarsjónina til að öðlast tilfinningu fyrir "næsta" orði í setningunni.  Hraðinn er birtur í rauntíma og árangurinn sést svart á hvítu þegar textinn er lesinn aftur.

LESSKILNINGUR OG FLÆÐI
Hér þjálfast augnhreyfingar og flæði þar sem lesandinn les kafla úr vinsælum bókum á stighækkandi hraða. Þessar æfingar flétta saman öllu sem á undan er komið og vekja auk þess áhuga barnsins á viðkomandi bók.

ENDURGJÖF EYKUR ÁRANGUR
Rannsóknir sýna að endurgjöf skiptir gríðarlegu máli.  Hver æfingaumferð er stutt og í lok hennar birtist mælir sem sýnir hraða og viðbragð svart á hvítu.  Þetta auðveldar bæði foreldri og barni að sjá hversu oft þarf að æfa hvert borð áður en haldið er áfram.

__CONFIG_optin__{"optin":0,"color":"light","size":"medium","text":"Subscribe Now","layout":"horizontal"}__CONFIG_optin__

Vinsælir höfundar leggja okkur lið

Lesæfingar ganga betur ef þær eru skemmtilegar.  Lesum hraðar byggir að hluta til á efni frá vinsælum höfundum sem við erum svo lukkuleg að eiga í gæfuríku samstarfi við.

Börn sem fara hægt af stað í lestri eða glíma við lestrarörðugleika eiga á hættu að geta ekki lesið sér til skemmtunar, hvað þá gagns.  Því leituðum við til vinsælla höfunda og útgefenda þeirra um að leggja okkur til efni úr frábærum, vönduðum bókum.

Flestar bækurnar tilheyra bókaflokkum því það auðveldar okkur að velja næstu bók!  Markmið okkar er að vekja áhuga barnsins svo það geti haldið lestrinum áfram í bókinni sjálfri!

Ævar Þór Benediktsson

Birgitta Haukdal

David Walliams

Ingibjörg Valsdóttir

SKRÁNING

LESUM HRAÐAR

Hentar mildari einkennum

kr.

9.900

/mán

  • Viðbragðsþjálfun
  • Fyrir snjallsíma og spjaldtölvur
  • Örvar nefnuhraða
  • Aðeins 5 mínútur á dag
  • 100% endurgreiðsluábyrgð í 30 daga

25% afsláttur
 9.900,- 7.425.-/mán

Við skráningu færðu strax fullan aðgang.  Áskriftin endurnýjast sjálfkrafa á 30 daga fresti þar til sagt er upp.  Engin binding og 30 daga endurgreiðsluábyrgð!